29.04.1955
Neðri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)

187. mál, togarinn Valborg Herjólfsdóttir

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta mál er ekki flókið. Rétt fyrir jólin lá þetta mál þannig fyrir, að togarinn Vilborg Herjólfsdóttir var til sölu. Það varð að svara því þá strax, hvort við vorum kaupendur að skipinu eða ekki. Þeir staðir, sem áhuga höfðu fyrir málinu, höfðu þá ekki skilyrði til þess að játa kaupunum. Ríkisstj. tók sig þá til og tók það á sig að kaupa skipið til bráðabirgða, upp á það að fá heimild Alþingis eftir á fyrir því. Það var ekki hægt að haga þessu öðruvísi, vegna þess að alþm. voru farnir í jólafríið um þessar mundir.

Nú hefur komið í ljós, að þessi ráðstöfun ríkisstj., sem mátti að vísu teljast nokkuð djörf, hefur mælzt vel fyrir, og allir hv. þm., að því er ég bezt veit, hafa eftir á látið í ljós það álit, að hér hafi verið rétt að farið að kaupa skipið og ráðstafa því á þann hátt, sem gert var.

Hv. síðasti ræðumaður sagði, að það væri æskilegt, að fram kæmu skýringar á því, hvers vegna skipið hafi legið í Reykjavíkurhöfn frá því um jól, að viðgerð var lokið og kaup fóru fram, og þangað til í marz, að skipið fór norður til hinna nýju eigenda. Ástæðan var einfaldlega sú, að hinir nýju kaupendur höfðu ekki aðstöðu til þess að eignast skipið fyrr en þetta. Þeir höfðu ekki komið sér fyrir með útvegun á þeim fjármunum, sem til þess þurfti að eignast skipið, fyrr en þetta. Þá var ekki um annað að gera en geyma skipið, þangað til þeir voru reiðubúnir að taka við því.