18.10.1954
Neðri deild: 5. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (192)

12. mál, yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. um framlengingu á söluskattinum er nú ekki hægt að telja lengur með nýjungum á hv. Alþ., þar sem skattur þessi er nú allgamall orðinn og hefur verið framlengdur ár eftir ár. Ég leyfi mér að vísa til þeirra raka, sem fram komu í sambandi við framsögu fyrir fjárlögunum, og mælast til þess, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari 1. umr.