13.10.1954
Efri deild: 3. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (219)
10. mál, verðlagsuppbót á laun opinberra starfsmanna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þótt ég geti ekkert um það fullyrt, þá þykir mér það ekki líklegt, að þessi endurskoðun geti leitt til setningar nýrra launalaga á þessu þingi. Þess vegna mætti að sjálfsögðu, eins og ég sagði áðan, taka það til íhugunar í þeirri nefnd, sem fær þetta til meðferðar, hvort grunnlaunauppbótin skyldi sett inn í lögin eða ekki.