05.11.1954
Efri deild: 12. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í C-deild Alþingistíðinda. (2332)
59. mál, iðnskóli í sveit
Flm. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Það verður vitanlega ekki hægt að segja um það, fyrr en þessar till. liggja fyrir, að hverju leyti þær kunni að ná sama tilgangi og það frv., sem hér liggur fyrir, og er ekki nema eðlilegt, að litið sé á þær till., ekki sízt þar sem þær koma, að mér skilst, frá mþn. í skólamálum. Eða var ekki mþn. í skólamálum að athuga þessi mál yfirleitt? Mér skildist, að hún hefði tekið iðnfræðsluna með, en það er það einkennilega, að þegar talað er um skólamál á Íslandi. þá hefur alltaf verið þannig, að menn gleyma því, að hér þurfi að vera til iðnfræðsla og iðnskólar. Það hefur verið utan við fræðslukerfið að vissu leyti.
Ég hef vitanlega ekkert á móti því, að þetta sé athugað í sambandi við þær till., sem fram kunna að koma. En ég vil benda á, að þess mundi ekki gerast þörf, þó að væri stofnaður sérstakur iðnskóli, sem ég að svo stöddu tel eðlilegra að gera, að kaupa hús eða byggja nýtt hús, því að það er vitað mál, að áhugi er fyrir því hjá sumum héraðsskólunum að breyta þeim einmitt í þetta horf. Get ég nefnt það, að skólanefndin í Reykjaskóla við Hrútafjörð hefur mjög mikinn áhuga á því að breyta þeim héraðsskóla einmitt í iðnskóla, og það færi satt að segja ekkert illa á því, að þar yrði fyrsti iðnskóli í sveit á Íslandi, vegna þess að þar hafa verið, báðum megin þess fjarðar, einhverjir oddhögustu menn, sem hafa verið á þessu landi, að Austur-Skaftfellingum ógleymdum. Bendi ég á þetta sem röksemd gegn því, að þó að þessi skóli yrði stofnaður, þá þyrfti að byggja nýtt hús fyrir hann. Ég tel rétt að segja frá þessu, því að mér er kunnugt, að það er alveg sérstakur áhugi fyrir því hjá skólanefndinni og þeim sýslum, sem að skólanum standa, að fá honum breytt einmitt í þetta horf.