19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (2404)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Mér er ljóst, að það stappar nærri yfirgangi að kveðja sér hljóðs nú á undan sumum þeim hv. þm., sem eru á mælendaskrá, en ég hef mér það til afsökunar, að ég mun tala hér örstutt, aðeins örfáar setningar af tilefni þess, sem hv. 2. þm. Reykv. (EOl) sagði.

Það hefur farið mjög í fínu taugar þessa hv. þm., að ég benti hér á ósamræmið í afstöðu talsmanns sósíalista í þessu máli, sem var fullkomlega með fádæmum. Við vitum vel, hvers vegna þessi tvísöngur var í ræðu hv. þm. Hann er hugsaður þannig, að ef hann hittir mann, sem hefur sérstakan áhuga fyrir því, að Íslendingar hafi rétt til Grænlands, þá ætlar þm. að segja við hann: Jú, það var einmitt þetta, sem ég hélt fram á Alþ., að Íslendingar ættu slíkan rétt og ættu þess vegna ekki að greiða atkv. með till. um Grænland á þingi Sameinuðu þjóðanna. — Ef hann svo hittir annan, sem hefur sérstakan áhuga fyrir sjálfsákvörðunarrétti þjóðanna, þá á þessi hv. þm. og allir sósíalistar að geta sagt: Jú, við vorum einmitt sérstakir talsmenn þess á Alþ., í sambandi við Grænlandsmálið, að það væri virtur sjálfsákvörðunarréttur þjóðanna. Það var einmitt það, sem við kröfðumst. — Svona á þessi söngur að vera. Og það var ekkert undarlegt, þó að hv. 2. þm. Reykv. yrði gramur, þegar á þetta var bent.

Ef nokkur heil brú væri til í afstöðu hv. 2. þm. Reykv. og kommúnista í þessu máli, þá ætti brtt. þeirra hér að vera um það, að Íslendingar greiddu atkv. á móti till. á þingi Sameinuðu þjóðanna, af því að þeir teldu meðferð Grænlandsmálsins af Dana hendi ekki vera í samræmi við sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna. Þetta geta þeir ekki sagt, því að þá geta þeir ekki lengur leikið tveimur skjöldum. Þeir verða að hafa nýlendurýtinginn í erminni. Þeir eru sem sagi talsmenn þess alveg annað veifið, að Íslendingar geri kröfu til þess að ráða Grænlandi, hvað sem grænlenzka þjóðin segir. Það er öll ást þeirra á frelsi og sjálfsákvörðunarrétti.