30.03.1955
Sameinað þing: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í D-deild Alþingistíðinda. (2713)
154. mál, minning Jóns Þorkelssonar skólameistara
Gunnar M. Magnúss:
Herra forseti. Þegar ég lagði fram till. til þál. um minningu Jóns Þorkelssonar skólameistara, lagði ég til, að hv. Alþingi kysi fimm manna nefnd, einn mann frá hverjum þingflokki, til þess að gera tillögur um, á hvern hátt þessa mæta manns, „föður íslenzkrar alþýðufræðslu“, yrði maklegast og virðulegast minnzt á 200. ártíð hans.
Hv. allshn. Sþ. hefur haft málið til umræðu og sent frá sér nál., sem hér liggur fyrir, og svo sem hv. frsm. n., 9. landsk., hefur skýrt hér frá, hefur n. orðið sammála um, að heiðra beri minningu Jóns Þorkelssonar, en leggur hins vegar til, að fræðslumálastjórnin og byggðarlög þau, sem einkum nutu gjafar Jóns Þorkelssonar, hafi forgöngu um að heiðra minningu hans með sérstökum hætti á 200. ártíð hans. Með þeim skilningi, að hv. Alþingi hafi með þessu veitt málinu þann stuðning, sem tilætlun mín var með þáltill., er ég lagði fram, mun ég fallast á fram komið nál. og tel það væntanlega lausn á því, að eitthvað verði, eins og orðað er, „með sérstökum hætti“ gert til þess, að þessa mæta manns verði minnzt árið 1959.