17.11.1954
Sameinað þing: 15. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í D-deild Alþingistíðinda. (2789)
76. mál, frjáls innflutningur bifreiða
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Hv. 1. landsk. þm. sagði, að það væri hverju orði sannara, að hér ætti sér stað verðbólguþróun. Þetta atriði ætla ég ekki að ræða. En ég vildi af tilefni þessarar ræðu hv. þm. og þessarar setningar sérstaklega spyrja hann, af því að hann er hagfræðiprófessor: Hvaða ráðstafanir telur hann heppilegt að gera nú til þess að mæta þeim voða, sem hann sér?
Ég hef ekki orðið var við nema eina afstöðu hér á þinginu, sem snertir þetta mál, af hálfu hv. þm., og hún er sú að afnema söluskattinn, sem ríkið hefur nú 110 millj. kr. tekjur af. Það mundi þýða stórfelldan halla á ríkisbúskapnum. Ég trúi því ekki, að það sé þetta eitt, sem hv. þm. lumar á í sambandi við þann vanda, sem hann sér, og þess vegna spyr ég, og ég mun hlusta með athygli, hverju hv. þm. svarar: Hvaða ráðstafanir telur hann nauðsynlegt að gera nú?