15.04.1955
Neðri deild: 72. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

188. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er augljóst, að það verða ekki á þessu þingi sett ný ákvæði um skatt félaga, sem verða mættu til frambúðar. Þess vegna leggur ríkisstj. til, að framlengd verði þau ákvæði, sem sett voru í lög á síðasta þingi til bráðabirgða um skattgreiðslu félaga og um álag á eignarskatt. En ákvæðið um álag á eignarskatt hefur ekki verið framlengt enn þá, heldur látið bíða, á meðan verið var að sjá, hvort auðnast mætti á þessu þingi eða ekki að koma á nýrri löggjöf um skattgreiðslur félaga til frambúðar.

Ég vil geta þess, að það mun sáralítil áhrif hafa á afkomu ríkisins, hvort þetta frv. verður samþ. eða ekki, því að það mun láta nærri, að þær hækkanir á sköttum, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, séu jafnháar og þær lækkanir á sköttum, sem það gerir ráð fyrir. Á hinn bóginn er ekki vafi á því, að það verður skynsamlegar fyrir komið skattgreiðslum félaga með því að framlengja ákvæðin, sem sett voru í fyrra, og lögfesta þetta frv. heldur en með því að láta þessi ákvæði falla niður og skattana vera eins og þeir mundu verða, ef þetta frv. yrði ekki að lögum.

Ég vil leyfa mér að óska þess, að málinu verði visað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.