26.10.1955
Sameinað þing: 7. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í D-deild Alþingistíðinda. (2519)

36. mál, friðunarsvæði fyrir Vestfjörðum

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Undan því hefur oft verið kvartað, að fjöldi mála lægi í nefnd og fengist þaðan ekki afgreiddur, og ástæða er til að taka undir þær umkvartanir nú, því að fjöldi mála, sem fram komu í byrjun þings, liggur þar enn og fæst ekki við hreyft. En nú er hér upp tekinn samt nýr háttur til að liggja á málum, og það gerist á þann hátt, að vikur og jafnvel mánuðir liða, eftir að n. hefur afgreitt mál, og þó er það ekki tekið á dagskrá. Um þetta hlýtur að vera að sakast annaðhvort við forseta þingsins eða við einhver öfl að baki þeim, t. d. eins og hæstv. ríkisstj., og verður ekki um það deilt, að slík vinnubrögð eru vítaverð.

Í upphafi þessa þings var lögð fram þáltill. um stækkun friðunarsvæðis fyrir Vestfjörðum, og þann 21. jan. gaf meiri hl. n. út álit, og virtist eiga að fylgja því eftir til afgreiðslu með skjótum hætti, því að það var boðaður þingfundur, ég held að kvöldi næsta dags, og þingfréttamaður látinn fara með það í útvarpið, að kvöldfundur ætti að vera um þetta mál. En svo var hann afboðaður í skyndi, og síðan hefur málið ekki verið tekið á dagskrá. Það var 21. jan. Síðan gaf minni hl. n. út nál., mikið og allýtarlegt, nokkrum dögum síðar, eða þann 6. febr., en þrátt fyrir það að bæði meiri hl. og minni hl. n. hafi þannig afgreitt málið frá sér, hefur það ekki komið á dagskrá.

Ég vil leyfa mér að víta þessi nýju vinnubrögð við að liggja á málum, sem jafnvel er búið að afgreiða í nefnd, og saka þar þá ekki fyrst og fremst forseta, heldur fyrst og fremst hæstv. ríkisstj. fyrir slík vinnubrögð, tel þau jafnvítaverð fyrir því.

Till. var ekki á dagskrá tekin framar