27.05.1957
Neðri deild: 109. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2122 í B-deild Alþingistíðinda. (2245)

83. mál, lax- og silungsveiði

Frsm. minni hl. (Jón Pálmason):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls hér í hv. d. flutti ég við það nokkrar brtt., sumar leiðréttingar, sumar eru efnisbreytingar o.s.frv. En það virðist vera bundið fastmælum hjá hv. meðmælendum þessa frv. að binda samtökin svo fast, að ekki mættu koma einu sinni orðabreytingar, svo að þessar till. voru allar felldar, að því undanskildu, að hv. landbn. eða meiri hl. hennar tók til greina eina brtt. varðandi stangarveiði í ósum. Að öðru leyti var sú breyt. á gerð hér við 3. umr., sem nokkur réttarbót er í, að á vissum stöðum væru heimilaðar bætur fyrir þann réttindamissi á veiði, sem lög þessi hafa í för með sér. Þetta hefur að nokkru leyti verið fellt niður í hv. Ed., að því leyti til, að það er fellt út úr frv. að miða við veiði síðustu 10 ára, og það hefur þýðingu fyrir marga veiðieigendur. En þrátt fyrir það sé ég nú ekki til neins að vera að flytja brtt. í þá átt að taka þetta upp aftur og ætla ekki heldur að flytja aðrar brtt., því að ég er alveg á móti þessu máli og mér er ljóst, að það er einn liðurinn í því, sem stefnir í þá átt að knýja unga menn burt úr sveitunum, þá menn, sem eru við veiðivötnin og sjá, að þeim er bannað að nota þann rétt, sem áður hefur fylgt jörðunum, og hann er settur í annarra manna hendur. Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um málið hér.

Það get ég þó fullvissað hv. þdm. um, að það munu fylgja þessu máli nokkuð víða um landið málaferli og þrætur meiri en þeir gera sér grein fyrir.