12.11.1957
Efri deild: 20. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (114)
2. mál, bifreiðaskattur o. fl.
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Með þessu frv. er ætlazt til, að framlengd verði þau ákvæði um sama efni, sem gilt hafa fyrir þetta ár og undanfarin ár. Frv. er þó ekki alveg samhljóða þeim lögum, sem nú gilda, því að orðalagi hefur aðeins verið breytt á einum stað, og er það aðeins til að gera ákvæðin skýrari, en þau eru í núgildandi lögum.
Fjhn. hafði málið til meðferðar og mælir einróma með, að það verði samþ. óbreytt, og vitanlega af þeirri ástæðu, að eins og ástatt er mun ríkissjóði sízt af öllu veita af því að halda þeim tekjum, sem hann hefur haft undanfarið, og má þakka fyrir, ef það nægir.