21.11.1957
Efri deild: 24. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)
18. mál, umferðarlög
Forseti (BSt):
Það hefur komið fram ósk frá hv. flm. brtt. á þskj. 64 um það, að umræðunni verði frestað og málið tekið út af dagskrá, vegna þess að upplýsingar vanti í málinu, sem þeir eiga von á og annar flm. gat um að mundi vera hægt að útvega með dags fyrirvara. Hins vegar hefur því verið mótmælt frá hendi n., sem fjallaði um málið, að málinu yrði frestað, sökum þess að óhyggilegt væri að tefja málið, vegna þess að Nd. á með öllu eftir að athuga það. Nú held ég, að hægt sé að verða við þessum óskum um að fresta málinu nú án þess að tefja það nokkuð, því þó að málið yrði afgreitt til Nd. í dag, þá tel ég ólíklegt, að sú hv. d. taki það fyrir til 1. umr, á morgun, sennilega ekki fyrr en á mánudag, og þó að málið verði afgreitt hér á morgun, þá er mjög líklegt, að það verði tekið fyrir til 1. umr. í Nd, nákvæmlega á sama tíma eins og þó að það verði afgr. í dag. Ég tel af þessum ástæðum, að það tefji ekki málið neitt, þó að umr. sé frestað í dag, en að hún verði á morgun, og mun því verða við óskum þessara tveggja hv. þm., en tek frv. á dagskrá á fundi á morgun og gef þá ekki lengri frest. Vona ég, að allir aðilar geti sætt sig við þessa niðurstöðu.