19.02.1958
Sameinað þing: 28. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1839 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)
Fríverslunarmálið
Ólafur Thors:
Herra forseti. Ég mun verða mjög fáorður, enda ætla ég mér ekki að blanda mér neitt í þær stórpólitísku umræður, sem hér fara fram.
Ég held, að ég hafi séð það í landsins ágætasta blaði, Morgunblaðinu, í morgun, að heimskunnur amerískur blaðamaður hafi tekið sig til og stytt dálítið bréfið sem Bulganin forsætisráðherra hefur verið að skrifa út um allan heim, og jafnframt hafði hann svarað efnislega fyrir hönd Eisenhowers þeim bréfum, sem þeim virðulega forseta höfðu borizt. Út af þessum löngu ræðum, sem hér hafa verið fluttar af hæstv. menntmrh. og hv. 3. þm. Reykv. (EOl), datt mér í hug, hvað þessi bandaríski blaðamaður mundi hafa sagt, ef hann hefði átt að stytta þær. Ég geri ráð fyrir, að hann hefði sagt f. h. hæstv. ráðh.: Kæri forseti Nd. Ég tel nú, að það sé a. m. k. mjög líklegt, að fríverzlunarsvæðið komist á. Ég er alveg ráðinn í því, að ef það kemst á, þá ber okkur Íslendingum að verða þátttakendur, enda sérðu það, kæri samherji, að ef við ekki verðum það, þá komumst við aldrei út úr eyðimörkinni, sem okkar hæstv. forsrh. tók að sér að leiða bæði mig og þig og þjóðina alla út úr, þegar hann tók við völdum fyrir hálfu öðru ári eða rúmlega það. Ég skal hins vegar gera það fyrir þig, góði, að ég skal ekki segja annað, en þetta opinberlega, um mitt hugarfar, meðan við erum samherjar og vinir.
Og svo mundi forseti Nd. segja: Kæri félmrh. Ég skal líka vera hógvær, og ég skal leyna mínum innra manni. Hitt vil ég segja í bróðerni, að það er ekkert annað en rugl, að þessi þjóð sé á einhverri eyðimörk. Lífskjör hennar hafa aldrei verið jafnglæsileg og nú, aldrei. Við búum við betri kjör en nokkur önnur þjóð í heiminum, eftir stjórn Ólafs Thors einkum, og þú skalt ekki vera neitt að vitna í Hermann Jónasson, það er ekkert að marka hann, varaðu þig á honum. Ég skal sem sagt þrátt fyrir þetta og vegna okkar góðu vináttu og kannske af dálitlu öðru, ekki fara lengra út í það, sem fyrir mér vakir.
Svona held ég, að þessi ameríski blaðamaður hefði gert dæmið upp.
Ég sagðist ekki vilja blanda mér í þessar stórpólitísku umræður. Ég veit, að allir hv. alþm. hafa vel skilið, alveg eins og ég, hvað hér er á ferðinni. Hæstv. menntmrh. flytur þessa ýtarlegu skýrslu, og í henni stendur: Það er mín skoðun eftir að hafa ráðfært mig við mína stéttarbræður í vestrænni samvinnu og eftir að hafa notið aðstoðar hinna hæfustu Íslendinga á þessu sviði, að ef þetta bandalag verður myndað, þá ber okkur að vera í því, að vísu með vissum skilyrðum, en ég hef líka miklar vonir um, að þeim skilyrðum fáist fullnægt. — Þetta er það, sem hann meinti. Hinn alþm. (E0l) segir hins vegar: Við okkur blasa dyr sjálfs vítis. Það er dauðinn, segir hann, það er dauðinn, sem tekur við okkur, ef við göngum inn um þessar dyr. Það er hinn eilífi dauði. Við afsölum okkur allri gamalli menningu, allri velmegun, allt verður jafnað niður á við og allt fer hér fjandans til, þrátt fyrir nýsköpun Ólafs Thors og mína og ágæta stjórn mína, frá því að hans lauk. — Þetta er það, sem þeim ber á milli, en þeir segja hvorugur, af hverju þeir tala svona. Það er af því, að hæstv. menntmrh. blæs að vestan og hæstv. forseti Nd. blæs að austan. Það er það, sem er að ske.
Hæstv. menntmrh. reyndi að breiða yfir þá staðreynd eins og hann gat, að hér eru á ferðinni frumdrög að sameinaðri Evrópu. Hann sagði að vísu alveg skýrt og greinilega, að tollabandalagið, sem nú er komið á, sé beinlínis stofnað í þeim tilgangi. Fyrir hinum þjóðunum, sem ætla að taka þátt í fríverzlunarsvæðinu, vakir það sama. Eftir því sem mér hefur skilizt af öllu, sem ég hef um þetta lesið og af þessu fregnað frá mönnum, sem eru því alveg eins kunnugir og hæstv. menntmrh., þá er hér á döfinni tilraun til stofnunar þriðja veraldarríkisins, ríkis sem ef ég veit rétt ræður yfir meira afli á tæknilega sviðinu og á miklu stærri orkulindir, en hin tvö stóru veraldarríkin. Þetta vill Evrópa áreiðanlega í stórum dráttum að komist á. Sjálfur hef ég haft þá ánægju að hlusta á ræðu, sem Sir Winston Churchill hélt um þessi efni, þar sem þessi hugsun alveg lá á borðinu, það var svo langt aftur í tímann sem 1947, sem hann hélt þessa ræðu. Þetta er hugsunin, sem er nú að fá byr undir báða vængi hjá mjög mörgum ráðamönnum Evrópu, þó að ýmsir treysti sér ekki enn þá af ýmsum og mismunandi ástæðum að kveða skýrt upp úr um þetta.
Gegn þessu stendur meitlaður vilji Sovétríkjanna. Það er sá vilji, sem hér blés að austan í ræðu mannsins, sem stóð á undan mér í þessum ræðustól. Það er þess vegna, sem hann ákallaði alla Íslendinga og bað þá að loka dyrum þessa vítis, sem fram undan blasa við, og skoraði á alla Íslendinga og aðra menn, sem þeir hefðu sambönd við, að hjálpa til að loka þessum dyrum að fullu og öllu. Það er þess vegna, sem hann ákallaði landvætti Íslands og æðri öfl sér til aðstoðar um, að úr bandalagi yrði aldrei. Það er þess vegna, sem hann reyndi einnig að magna hvern draug gegn þeirri hugsjón, sem ég var að útskýra og áreiðanlega á sér miklu dýpri rætur í huga og hjarta hæstv. menntmrh. en hann vildi láta í skína í sinni ræðu.
Auðvitað þótti mér mjög gaman að sjá þessa hesta leidda hvorn gegn öðrum. Það er engum vafa undirorpið, að hæstv. menntmrh. sagði við sjálfan sig, þegar hann var að semja þessa skýrslu, að svo miklu leyti sem hann hefur samið hana sjálfur: Vefðu allt í ull, sem gæti komið illa við þína nýju vini, bæði hæstv. félmrh., sem á sínum tíma var rekinn fyrir hans tilstilli úr þeim flokki, sem hann sjálfur er nú í, og hina nýju vinina, sem nú gildir svo mikið um að fæla ekki frá sér. — Það er auðvitað ákaflega gaman, segi ég, að hlusta á þetta. En það er ekkert nýtt í þessu að því leyti til, að maður les aldrei nokkurt dagblað núna af stjórnarblöðunum þannig, að það sé ekki einmitt þessi sama regla, svart — hvítt. Það nýjasta er í dag, að hæstv. sjútvmrh. hefur tilkynnt, að hann sé að kaupa 15 togara. Hæstv. menntmrh, og utanrrh. segja: Hvaða mont er þetta? Í fyrsta lagi ert þú engan að kaupa, í öðru lagi ætlum við ekki að kaupa nema 8. —
Og til þess að jafna metin eða sætta þessa ágætu háseta tekur hæstv. forsrh. sig til og segir: Ég gef hér með út yfirlýsingu fyrir hönd ykkar, svo að þið séuð ekki að rífast, það á ekki að kaupa 15, það á ekki að kaupa 8, það á að kaupa eitthvað af togurum fyrir þá peninga, sem við fáum lánaða. — Svo er bara eftir að vita, hvað þeir eru miklir, enn þá hefur enginn getað fengið neitt, ekki fyrir doríu, hvað þá heldur skútu og hvað þá heldur 15 togurum. Ég meina þetta er tónninn, sem maður á að venjast, og manni þykir auðvitað ákaflega gaman að heyra þessa bráðmælsku menn leiða hér sama hesta sína og mega skemmta sér við að hlusta á þá. En efni málsins er þetta, eins og ég áðan sagði, að Sovétríkin standa með öllum sínum mætti og þ. á m. öllum sínum hermönnum, líka hermönnum úr forsetastól eða ráðherrastól, hvar sem þeir kunna að sitja, gegn því, að þetta tollabandalag útvíkkist yfir fríverzlunarbandalagið, líka af því, að þeir vita, að hér er í uppsiglingu hið volduga þriðja ríki, sem þeir kæra sig ekki um.
Ég vil svo að öðru leyti um skýrslu hæstv. menntmrh. segja það, að hún kom ekki vonum fyrr. Ég hafði sjálfur leyft mér fyrir mánuðum að hvetja hann til þess að láta Alþ. fylgjast með þessum málum. En vegna þessa dráttar, sem á hefur orðið, er það að segja um hina almennu hlið málsins, að hún kemur engum á óvart. Ég býst við, að allir þeir þingmenn, sem eitthvað fylgjast með í erlendum tímaritum eða blöðum, hljóti að meginefni til að hafa þekkt allan þann kafla skýrslunnar, sem fjallaði um almennu hliðina, einfaldlega vegna þess, að öll stærri blöð hins vestræna heims eru löngu búin að segja frá þessu, fyrir mörgum mánuðum, og ráðh., sem sitja í virðulegu tilsvarandi sæti og hæstv. menntmrh., hafa fyrir löngu gefið sínum þingum svona skýrslur og sumir fullkomnari, en hann gerði. Ég þakka hins vegar fyrir, að skýrslan þó kom, og varðandi þá hliðina, sem að Íslandi sérstaklega veit, þá gætti þar mikils fróðleiks, mjög mikils. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. hafi látið sína embættismenn draga þann fróðleik saman, bæði þá menn, sem hann sjálfur sagði frá að hefðu unnið að málinu fyrir sig allan tímann, þ. e. a. s. hagfræðing Landsbankans, Jóhannes Nordal, ambassador Hans Andersen og sendiráðsritara Níels Sigurðsson, ásamt sjálfsagt með öðrum íslenzkum sérfræðingum. Efast ég þó ekki um, að hann hefur lagt þar hönd á plóginn sjálfur, eftir því sem hann hefur haft tíma til og þótt tilefni til.
Ég segi það, að ég tel þessa skýrslu varðandi íslenzku hliðina mjög uppbyggilega. Ég hefði slitið það skynsamlegri vinnubrögð að útbýta þessari skýrslugerð meðal þm. og svo flytja um málið stuttan útdrátt á þingi, þegar okkur hefði gefizt kostur á að lesa skýrsluna, þannig að menn gætu þá haft tækifæri til að rökræða málið, ef þeim þætti ástæða til. Mér fannst skýrslan sannast sagna þannig, að hún gæfi ekki tilefni til stórra rökræðna nema einmitt svona, að hér yrði háð pólitískt einvígi milli austurs og vesturs. Það er önnur hlið á málinu.
Ég tel fyrir mitt leyti, að það sé sjálfsagt að vinna að málinu áfram, gaumgæfilega og samvizkusamlega, og ég mundi skora á hæstv. ráðh. að gefa öllum þingflokkum tækifæri til þess að fylgjast jafnóðum með öllu, sem gerist í málinu, þannig að við getum, þegar á örlagastundina kemur, verið reiðubúnir — oft helzt fyrr — til að kveða upp úr um okkar dóm í málinu.
Ræða og skýrsla hæstv. ráðh. og einnig skýrsla hv. 3. þm. Reykv, sýndu það mjög ljóslega og óþarfi fyrir mig að vera að endurtaka það, að hér getur orðið úr vöndu að ráða, þó að annar teldi, eins og ég segi, það svart, sem hinn taldi hvítt í ýmsum efnum, og væru þó báðir að láta minna bera á ágreiningnum, en undir niðri býr.
Ég hygg, þar sem málið er ekki heldur komið á það stig, að þar sem okkur sjálfstæðismönnum hefur ekki gefizt kostur á að kynnast því fyrr en í gær, þá sé ástæðulaust fyrir mig að vera að kveða upp úr á þessu stigi um okkar álit og jafnvel mitt eigið og get heldur ekki sagt um skoðun minna flokksbræðra, þar sem enginn flokksfundur hefur verið haldinn, eftir að ráðherrann flutti skýrsluna.
Ég er honum alveg sammála um það, hæstv. ráðh., að ef slíkt bandalag verður stofnað, þú er það enginn leikur, þó að maður alveg sleppi nú öllum vestangusti eða austanstormi, alveg sleppi því, þá er það enginn leikur fyrir Íslendinga að ætla sér að standa utan við, og ég sé sannast sagna ekki, hvernig við yndum okkur fram úr því. Ég er ekki reiðubúinn að benda á úrræði um það. En því vandasamara sem málið er, því meiri ástæða er fyrir hæstv. ráðh. að hafa alla — einnig stjórnarandstöðuna — í fullu samráði um málið og veita mönnum alla þá vitneskju, sem berst, jafnóðum og hún berst.
Mönnum þykir það kannske vanþakklæti, að ég skuli einmitt nota tækifærið, þegar loksins ráðh. hefur gefið skýrsluna, til þess að deila á hann fyrir það, að hún kom ekki fyrr. En ég get ekki firrt mig þeirri hugsun, að bæði er skýrslan ný, að því er varðar upplýsingarnar í hinum sérstaka íslenzka kafla hennar, en auk þess stend ég við það, að mér þykir leiðinlegt að þurfa að læra það af norskum, dönskum eða enskum ráðherrum, sem við viljum gjarnan heldur læra af okkar eigin ráðherra um þessi mál, fyrir nú utan að svo að segja flettir maður ekki upp blaði, ensku eða skandinavísku, án þess að það séu svo að kalla aðalfregnir, hvað í þessu mikla máli gerist.
Ég segi svo að lokum aðeins þetta, að ég tel alveg sjálfsagt að fylgjast áfram gaumgæfilega með öllu, sem þarna skeður, m. a. til þess að fækka þeim efum, sem hæstv. ráðh. lét tíðrætt um í gær. Þar með á ég að sjálfsögðu við: m. a. til þess, að okkur gefist sem bezt færi á að skýra þá sérstöðu, sem við í ýmsum efnum höfum, og sýna okkar vestrænu vinum fram á, að um leið og það getur orðið okkar dauði að verða utan við þetta, þá geti það einnig verið þröngur kostur fyrir okkur að ganga inn í það. En ég skildi það vel á hæstv. ráðh., að hann gerði sér miklar vonir um, að þeir annmarkar, sem væru fyrir okkur í þessum efnum, mundu verða minni og minni, eftir því sem málstaður okkar skýrðist. Þetta eru einmitt þær hugmyndir, sem ég hafði gert mér um það líka, og ég fagna því, að hæstv. ráðh. tilkynnir okkur þetta.
Um þetta sé ég svo ekki ástæðu til að segja meira á þessu stigi, en endurtek, að ég óska, að við fáum að fylgjast með því, sem þarna gerist, um leið og ég geng auðvitað út frá því sem gefnu, að þessi langa skýrsla verði látin flokkunum og helzt öllum þingmönnum í té.