28.11.1957
Efri deild: 28. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

62. mál, fyrningarafskriftir

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Eins og segir í þskj. 103, sem er um frv. til l. um breyt. á l. nr. 59 7. maí 1946, um sérstakar fyrningarafskriftir, og er nál. fjhn. í þessari hv. d., hefur nefndin athugað þetta mál og leggur til einróma, að það verði samþ. óbreytt. Hv. 6. þm. Reykv. (GTh) var ekki viðstaddur á þeim fundi, er mál þetta var afgreitt. Málið sjálft skýrir sig bezt í aths. þeim, sem eru við frv., en frv. heitir frv. um breyt. á l. nr. 59 7. maí 1946, um sérstakar fyrningarafskriftir, og segir svo í aths.:

„Lög nr. 44 frá 1954, um breyt. á l. nr. 59 7. maí 1946, um sérstakar fyrningarafskriftir, taka aðeins til tækja, er tekin voru í notkun á árinu 1956 eða fyrr. Með þessu frv. er lagt til, að ákvæði áðurgreindra laga verði látin gilda fyrir árin 1957, 1958 og 1959.“

Hljóðar 1. Gr. frv, því svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Heimild 1. gr. laga nr. 59 7. maí 1946 til sérstakra afskrifta skal einnig ná til eigna af þeirri tegund, sem þar eru taldar og teknar í fyrstu notkun á árunum 1957, 1958 og 1959. Enn fremur skal heimildin gilda um farþega- og vöruflutningaflugvélar, sem teknar verða í fyrstu notkun á árunum 1957–1959. Öll önnur ákvæði framangreindra laga gilda einnig um þessar eignir.“

Ég tel mig ekki þurfa að fjölyrða meira um málið. Hv. fjhn. leggur til, að það verði samþykkt óbreytt.