24.03.1958
Efri deild: 72. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (583)
100. mál, skattur á stóreignir
Jóhann Jósefsson:
Ég ætlaði að spyrja hæstv. forseta utan dagskrár, hvort aukið svar væri komið frá skattstjóranum við spurningum, sem ræddar voru fyrr við umræðu þessa máls, og mér skildist, að hæstv. forseti ætlaði þá að ganga eftir fyllra svari. Ég ætlaði bara að spyrja um, hvort það væri komið, og vil ekki láta skoða þetta sem ræðu, heldur fsp. utan dagskrár.