24.03.1958
Efri deild: 72. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

100. mál, skattur á stóreignir

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég hef nú heyrt svar hv. 1. þm. Eyf., öðru nafni hæstv. forseta þessarar deildar, um það, að skattstjóri væri fús til þess að gefa áætlunarsvar út af þeim fsp., sem til hans var beint og hann mæltist til síðast, að ekki væri eftir gengið frekara svari, en sendi ekkert svar.

Nú, þegar hv. 1. þm. Eyf., sem er formaður fjhn., hefur komið með þessi skilaboð, að skattstjórinn vilji þó láta til leiðast að gefa áætlunarsvar, þá leyfi ég mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að það verði ekki tekin afstaða deildarinnar til þeirra brtt., sem við hv. 6. þm. Reykv. höfum borið hér fram, fyrr en áætlunarsvar skattstjórans liggur fyrir hv. deild. Ég mælist til þess, að það sé frestað atkvgr. um þessar till., þangað til við sjáum, hverjar áætlunartölur koma frá hv. skattstjóra, sem nú er búið að gefa í skyn að muni vera fáanlegar.