27.03.1958
Efri deild: 74. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
100. mál, skattur á stóreignir
Forseti (BSt):
Út af ummælum hv. þm. V-Sk. vil ég taka það fram, að mér er kunnugt um, að þetta mál hefur verið óvenjulega mikið athugað, samanborið við önnur mál, bæði í n. og hér í deildinni. Það var víst á 4 fundum til umr. við 2. umr. málsins og reynt að afla þeirra upplýsinga og það tvisvar sinnum, sem hv. till.-menn þessara till. fóru fram á. Og þó að þetta séu ekki nákvæmlega sömu till. og hér voru felldar, fara þær ákaflega nærri þeim, og ég sé ekki ástæðu til þess að fresta umr. Ég veit fyrir fram, að það breytir engu, hvort það eru þær till., sem felldar voru, eða þessar; það getur ekki raskað neinu um afstöðu manna. Það er t.d. ákaflega lítill munur á 60% og 55% eða 40% og 35% o.s.frv.
Það virðist ekki vera óskað eftir því af framsögumanni, og ég get ekki heldur séð ástæðu til þess að taka nú málið út af dagskrá. Það hefur einmitt verið gefið óvenjulega mikið tækifæri til að ræða þetta mál í deildinni.