10.03.1958
Efri deild: 64. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

148. mál, ríkisreikningar

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Eins og hæstv. fjmrh. gat um, þá er það ríkisreikningurinn fyrir 1955, sem hér er á dagskrá, og um hann hef ég heyrt það, að umframgreiðslur utan fjárlaga, sem um ræðir fyrir það ár, hafi orðið alveg óvenjulega miklar. Vildi ég leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh. um hans álit á því varðandi þennan reikning fyrir árið 1955 eða afkomuna á því ári, hvert væri hans álit um, hversu mikilli upphæð umframgreiðslur nemi. Ég hef að vísu heyrt nefndar tölur í þessu sambandi, en teldi réttara að heyra skýrslu hæstv. fjmrh. þar um.