10.11.1958
Neðri deild: 18. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
10. mál, skemmtanaskattur með viðauka
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til að framlengja þau ákvæði um álag á skemmtanaskatt, sem í gildi hafa verið um langt árabil. Enn sem fyrr mæla sömu rök með því, að þessi skipun verði látin haldast. Það er engin breyt. lögð til á upphæð skemmtanaskattsins, heldur eingöngu að framlengja ákvæði, sem í gildi hafa verið á annan áratug.
Ég leyfi mér að óska þess, að frv. verði vísað til hv. fjhn.