11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í D-deild Alþingistíðinda. (3200)
909. mál, stofnlánasjóðir Búnaðarbankans
Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Það, sem fram hefur komið, frá því er þessi fsp. var lögð fram í þinginu, er það, að samkvæmt 2. fsp.-liðnum hafa verið veitt lán úr byggingarsjóði. Hitt var vitað, að það hafði verið lánað út á framkvæmdir úr ræktunarsjóði fyrir árið 1959, þau lán, sem tilbúin voru fyrir áramót. Hins vegar vissi ég ekki fyrr en nú, ef það reynist rétt, sem ráðh. sagði, að það sé einnig búið að lána út á framkvæmdir fyrir árið 1959 samkvæmt þeim skjölum og gögnum, sem lögð voru inn í bankann, eftir að efnahagsmálalöggjöfin var samþykkt. Það var mér ekki kunnugt um, en vonandi er það svar rétt hjá hæstv. ráðh.
Þá er aðalatriðið í þessum fsp., og það er það, hvernig komið verður á móts við þá bændur í landinu, sem nú hugsa sér að hefja framkvæmdir á þessu vori og voru með óloknar framkvæmdir á árinu, sem leið, því að þótt segja megi, að einstaka sinnum hafi verið uggur í bændastétt landsins út í framtíðina, þá hygg ég, að það hafi aldrei nokkurn tíma verið jafnmikið og nú og það er hreint ekki að ástæðulausu, enda eru engar fsp., sem frá bændum koma, sem ekki eru á þann veg: Er óhætt fyrir mig að ráðast í nokkra framkvæmd nú með tilliti til þess, að mér verði séð fyrir hliðstæðum lánum og á undanförnum árum? Og ég verð að játa það, að út frá svari hæstv. ráðh. er þetta hreint ekki svo jákvætt, að bændastéttin sé örugg með að leggja út í þær framkvæmdir, sem hún hugsar sér, samkv. þeim svörum, því að eina svarið um útvegun fjármagns eftirleiðis er það, að nauðsynlegt sé að útvega fjármagn. Það vita vitanlega allir. En hins vegar liggur ekkert fyrir um það, hvað gert er í því, og það upplýsti ráðh. ekki heldur, en sagði, að stjórnin hefði þetta í hyggju allt saman, og það má vel vera. En ég segi bara, að þessi hæstv. ríkisstj. má hafa hraðari hendur um þessa hluti eftirleiðis en hún hefur haft um þessi mál frá því á Þorláksmessu 1958.
Sama máli gegnir vitanlega um veðdeild Búnaðarbankans. Það var satt hjá hæstv. ráðh., að búnaðarþing samþykkti till. í þessum efnum. En þar sem ráðh. nefndi það, vildi ég leyfa mér að spyrja hann að því, hvort ríkisstj. væri eitthvað farin að vinna í þeim málum samkvæmt þeirri till., sem þar var samþ.