18.05.1960
Sameinað þing: 50. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í D-deild Alþingistíðinda. (3236)

160. mál, alþýðuskólar

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Þar sem hv. þm. Daníel Ágústínusson, sem er fyrri fyrirspyrjandi. er ekki á þingi nú, vil ég leyfa mér að gera grein fyrir fsp., sem er á þskj. 429, en hún hljóðar þannig: „Hvað líður framkvæmd þál. um undirbúning löggjafar um óháða alþýðuskóla frá 2. des. 1955?“

En þál. frá 2. des. 1955 hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að undirbúa löggjöf um stofnun eins eða fleiri æskulýðsskóla með lýðháskólasniði, án sambands við menntaskóla og sérskóla, enda verði landspróf ekki haldið í þeim skólum. Jafnframt verði athugað, hvort ekki er hægt að ná þessu marki með því að breyta einum eða fleiri skólum gagnfræðastigsins í þessa átt. Leitað sé m.a. álits Ungmennafélags Íslands um þetta mál og till. ríkisstj. um það lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi.“

Síðan till. þessi var samþ. hér á hv. Alþ., eru liðin tæplega fimm ár, og ég vænti því þess, að einhver undirbúningur sé hafinn að máli þessu, og óska eftir því, að hæstv. menntmrh. svari fyrirspurn þessari.