24.03.1961
Neðri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)

181. mál, heimild til að veita Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni stýrimannaskírteini

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Þar sem sjútvn. Nd. afgreiddi þetta mál í dag og það er tekið til 2. umr. hér í kvöld, þá vil ég að sjálfsögðu áskilja mér rétt til að flytja brtt. við þetta frv. við 3. umr., ef ég sé ástæðu til. Ég hef nokkuð verið að kanna þetta mál í dag vegna þess ágreinings, sem kom upp á nefndarfundi í dag út af þessu máli, og ég vil í framhaldi af því taka undir það, sem hv. frsm. sagði, að við þennan skóla eru kennd öll þau fög og sá maður, sem lagaheimild þessi fjallar um, hefur tekið próf í öllum þeim fögum, sem er krafizt af þeim mönnum að taka, sem þreyta próf við stýrimannaskólann í Reykjavík. En þess ber þó að gæta, að undanskilið er eitt fag, sem við stýrimannaskólann í Reykjavík kallast sjóréttur, og er það fag, sem fjallar um íslenzk lög og lagabálka, sem þeirra starfi tilheyra, hann er að sjálfsögðu ekki kenndur við Hinn konunglega sjóliðsforingjaskóla í Kaupmannahöfn. Ég hef ekki enn þá gert mér fyllilega ljóst, því að ég er enn að afla mér upplýsinga þar um, hvort ástæða sé til að flytja brtt. þess efnis, að þessum manni verði gert skylt að taka lokapróf í umræddu fagi við stýrimannaskólann í Reykjavík, en fljótt á litið virðist mér, að svo sé, og svo virtist fleirum á fundi í hv. sjútvn. í dag.