02.11.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í D-deild Alþingistíðinda. (3078)

76. mál, veðdeild Búnaðarbankans

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það nefur verið minnzt á í þessum umr. brtt., sem ég bar fram á síðasta þingi við þá till. til þál. um veðdeild Búnaðarbankans, sem hér lá fyrir og samþ. var. Ég tók fram, þegar ég bar fram þessa brtt., að ég teldi að sjálfsögðu gott, að rannsökuð yrði fjárþörf veðdeildarinnar og reynt að tryggja starfsgrundvöll hennar í framtíðinni en um leið þyrfti að gera ráðstafanir til að bæta úr brýnustu þörfinni, og þess vegna bar ég fram till. mína um viðbót við ályktunina. Hæstv. landbrh. sagði þá, að hann teldi ekki þörf á því að samþ. þessa till. mína. Það væri vitað mál að það væri almennur vilji hjá þm. fyrir því, að útvegað yrði fé til veðdeildarinnar. Og hann sagði einnig, að hjá ríkisstj. væri vilji fyrir hendi til þess að útvega veðdeildinni fé svo fljótt sem mögulegt er. Ég fór fram á í minni till., að skorað væri á ríkisstj. að útvega veðdeildinni nú þegar nokkra fjárupphæð. Ég nefndi það ekki í ályktuninni og ég held, að ég hafi ekki heldur nefnt það í ræðum um málið, hvaða lágmarksupphæð ætti að útvega, — ég mun hafa talað um nokkrar millj., þó að þær væru ekki margar, þá væri það strax betra en ekkert til að bæta úr brýnustu þörf. Ég minnist ekki þess, að ég nefndi ákveðna upphæð.

Ég hygg, að þessi ummæli hæstv. ráðh. þá um þennan vilja hjá ríkisstj. til að bæta hið fyrsta úr brýnustu þörf veðdeildarinnar hafi orðið til þess að stuðningsmenn hans hér á þingi greiddu atkv. gegn brtt. minni.

Ráðh. sagði enn fremur, að ríkisstj. hefði hug á — hann sagði það í vor — að leysa mál veðdeildarinnar, og síðar, að hún hefði fullan hug á því. Ég get viðurkennt það, eins og fleiri hafa gert, að það sé ekki hægt að ásaka ríkisstj. svo mjög fyrir það, þó að hún sé ekki nú þegar búin að koma þessum málum í það horf, að það sé tryggt, að veðdeildin geti í framtíðinni að fullu gegnt sínu hlutverkí. En hitt hefði áreiðanlega verið auðvelt fyrir hæstv. ríkisstj., að útvega veðdeildinni dálitla upphæð til bráðabirgða, þar sem nú er liðinn hálfur sjötti mánuður, síðan ályktunin var samþykkt. Hæstv. ráðh. segir að vísu, að það sé búið að ákveða að útvega veðdeildinni 3 millj. og hún fái þær væntanlega næstu daga. Ég vil vænta þess, að það dragist ekki lengi, og vil í því sambandi benda á að ef nokkur von á að vera um það, að hægt verði að fá afgreidd einhver lán frá veðdeildinni á þessu ári, Þá þarf hún að fá þessa upphæð nú næstu daga. Dragist það lengur, mun ekki verða hægt fyrir bankann að afgreiða nein lán fyrir áramótin.