13.02.1961
Neðri deild: 62. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

112. mál, ríkisreikningurinn 1959

Fram. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. v. segir nú, að það hafi verið þannig á undanförnum árum, að hinni umboðslegu endurskoðun hafi ekki verið að fullu lokið. Þessi yfirlýsing frá yfirskoðunarmanninum kemur náttúrlega nokkuð seint, eftir að Alþingi er búið að afgreiða frá sér ríkisreikninga allra þessara ára. Seinast þegar þeir gerðu aths. af þessu tagi, en það var haustið 1954 um ríkisreikninginn 1952, þá segja þeir í 30. aths. sinni: „Endurskoðun reikninga hinna ýmsu stofnana ríkisins hefur mikið færzt í betra horf frá því, er áður var. Þó eru reikningar nokkurra stofnana óendurskoðaðir frá 1952 og sumir þeirra fyrir lengri tíma.“ En í till. sínum til Alþingis segja svo yfirskoðunarmenn: „Áherzlu ber að leggja á það, að endurskoðuninni verði að fullu komið í lag. Athugasemdin er því til eftírbreytni: Síðan koma reikningar næstu fimm ára, þar sem engin aths. af þessu tagi kemur fram hjá þeim, hvorki í umr. né í hinum skriflegu athugasemdum, og þm. höfðu því ástæðu til að ætla, að þeir hefðu fylgt þessu eftir, sem þeir sögðu, að áherzlu bæri að leggja á, að endurskoðuninni væri að fullu lokið, og hafa því samþ. reikninginn í góðri trú, að hann væri fullendurskoðaður.

Í ræðu sinni um þetta mál lét hæstv. ráðh. orð falla um það, að einkennilegt væri af mér, sem hef á þessum tíma setið í fjhn., að ég skyldi ekki fyrr en nú gera aths. um þetta. Það var vitanlega ekki eðlilegt, að ég gerði það. þar sem engin aths. lá fyrir frá yfirskoðunarmönnum Alþ., og ég gat því ekki vitað annað en reikningurinn væri að fullu endurskoðaður. Allar hans ásakanir í minn garð út af þessu falla því ómerkar. Þær hafa ekki við rök að styðjast.