10.03.1961
Neðri deild: 73. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
183. mál, Útvegsbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef skilað séráliti um málið á þskj. 434. Eins og þar er bent á, er aðalbreytingin á gildandi lögum, sem frv. felur í sér, ákvæði um kosningu bankaráðs, sem á að verða með nokkuð öðrum hætti en nú er, og enn fremur, að nú þegar skuli kjósa nýtt bankaráð, ef frv. þetta verður samþykkt, og þá eftir hinum nýju ákvæðum, þó að kjörtími núv. bankaráðsmanna sé ekki liðinn.
Ég tel þessa breytingu á lögunum sízt til bóta, heldur fremur hið gagnstæða, og legg til, að frv. verði fellt.