09.04.1962
Efri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)
210. mál, Samvinnubanki Íslands hf.
Frsm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Hv. fjhn. fól mér að lýsa afstöðu sinni til þessa frv., sem hér liggur fyrir um Samvinnubanka Íslands h/f. Þetta er mjög létt verk, því að nefndin mælir einróma með því, að frv. verði samþykkt, eins og það liggur fyrir, svo sem nál. ber með sér.
Hæstv. menntmrh. gerði grein fyrir því við 1. umr. málsins, hvers vegna hæstv. ríkisstj. flytur frv. Enn fremur drap hann þá á helztu efnisatriði þess og gat þess, að ákvæði þess væru að flestu leyti hliðstæð þeim lagaboðum, sem gilda um Verzlunarbanka Íslands h/f. Og af því að þetta mál virðist alls ekki neitt ágreiningsmál. sýnist mér ónauðsynlegt að rekja efni þess og einstakar greinar meira en hæstv. viðskmrh. gerði, og leyfi ég mér að skírskota til ræðu hans.
Ég minnist þess, frá því að ég var ungur að árum, að ég heyrði frumherja samvinnuhreyfingarinnar í mínu héraði tala um stofnun Samvinnubanka sem fjarlægt takmark. Nú er þetta takmark að nást og raunar fyrr en varði. Auðvitað er þetta þó aðeins í samræmi við þróun bankamála í landi okkar. Mér finnst sögulega vel til hagað, að löggjöf um bankann verði sett á því ári, sem elzta samvinnufélagið er 80 ára og samband samvinnufélaganna 60 ára. Ég vil sem samvinnumaður leyfa mér að þakka hæstv. ríkisstj., að hún tók þetta mál til flutnings og greiðir vel götu þess í gegnum annasamt þing.
Að svo mæltu endurtek ég, að fjhn. mælir shlj. með samþykkt þessa frv.