29.10.1962
Neðri deild: 8. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (2281)
36. mál, ferðaskrifstofur
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Á öðru þskj. flyt ég frv. um afnám á einkarétti Ferðaskrifstofu ríkisins til að taka á móti erlendum ferðamönnum. Eins og fram kemur í fskj. þeim, sem fylgja þessu frv. er það sameiginlegt álit allra hinna kunnugustu aðila um þessi mál, að þannig sé nú komið, að það sé rétt að afnema þennan einkarétt. Það þykir hins vegar eðlilegt, að þegar þessi einkaréttur er afnuminn, verði tekið upp nokkurt eftirlit með þeim ferðaskrifstofum, sem koma til með að starfa og taka á móti útlendingum. Þess vegna er þetta frv. flutt, en þar er gert ráð fyrir því, að ekki verði heimilt að reka ferðaskrifstofur nema að fengnu leyfi ráðh., og enn fremur, að sett verði ákvæði um það í reglugerð, hvaða skilyrði það eru, sem ferðaskrifstofur þurfa að fullnægja, og að þær skuli því aðeins halda leyfi sínu, að þessum skilyrðum sé fullnægt. Um þetta atriði var nokkuð rætt, þegar frv. mitt um að afnema einkarétt Ferðaskrifstofu ríkisins var til umr. fyrir nokkrum dögum hér í hv. deild, og sé ég því ekki ástæðu til að ræða um þetta efni frekar að sinni. Ég legg svo til, að að umr. lokinni verði þessu frv. vísað til samgmn.