20.11.1962
Neðri deild: 17. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (2371)
78. mál, efnahagsmál
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Hæstv. forseti. Samkv. 16. gr. l. nr. 4 frá 1960, um efnahagsmál, er ríkisstj. heimilt að innheimta sérstakt gjald af innfluttum bifreiðum og bifhjólum, og má það nema allt að 135% af fob-verði hverrar bifreiðar eða bifhjóls. Gjald þetta skal innheimta um leið og gefin eru út innflutningsleyfi fyrir bifreiðar.
Ríkisstj. hefur framkvæmt þetta lagaákvæði þannig, að hún hefur látið þetta gjald, sem kallað er leyfisgjald, ná til allra bifreiða annarra en stórra vörubifreiða og jeppa. Þær tegundir bifreiða hefur hún talið rétt að undanþiggja, og er ég henni sammála um það. En það er áreiðanlega jafnrétt að undanþiggja einnig bifreiðarleigubílstjóra, minni vörubifreiðar og læknabifreiðar, því að þar stendur mjög líkt á um og hinar stærri vörubifreiðar og jeppa. Það er ekki nema réttlætismál, að þessar bifreiðar séu einnig undanþegnar gjaldinu, og til þess að tryggja það, er þetta frv. flutt.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri að sinni, en legg til, að að umr. lokinni verði frv. vísað til fjhn.