12.12.1963
Sameinað þing: 26. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2221 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 11. des. 1963. 4. landsk. þm., Guðmundur Í. Guðmundsson, hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Ó. Ólafsson,
forseti efri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Einnig liggur fyrir svo hljóðandi símskeyti frá Friðjóni Skarphéðinssyni:
„Vegna annríkis í embætti mínu hef ég ekki tök á að taka sæti á Alþingi í fjarveru Guðmundar Í. Guðmundssonar að þessu sinni.
Friðjón Skarphéðinsson.“
Enn fremur liggur fyrir kjörbréf Unnars Stefánssonar, útgefið af landskjörstjórn, og vildi ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. —[Fundarhlé.]