21.12.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2248 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)

Þinghlé

forseti (BF):

Þar sem nú er lokið afgreiðslu þeirra mála, sem aðkallandi var talið að afgreiða fyrir jól, verður gert hlé á fundum Alþingis um sinn og fram yfir hátíðar. Forsetar Alþingis hafa ákveðið í samráði við hæstv. ríkisstj., að þetta fundarhlé verði til 16. jan. n.k. Verða því væntanlega ekki kallaðir saman fundir á ný fyrr en þann dag og verða þá boðaðir með dagskrá.

Ég vil nota þetta tækifæri til þess að óska hæstv. ríkisstj., hv. alþm. og öllu starfsliði þingsins gleðilegra jóla, góðs og farsæls nýárs. Sérstaklega vil ég þakka. skrifstofustjóra og starfsmönnum þingsins fyrir að leysa með prýði af hendi þau auknu störf, sem prentaraverkfallið hefur haft í för með sér. Þá þakka ég hæstv. ríkisstj. og hv. alþm., skrifstofustjóra og öðrum starfsmönnum þingsins fyrir samstarfið á árinu. Enn fremur vil ég óska hv. alþm. góðrar ferðar og farsællar heimkomu og vænti þess, að við megum allir hittast heilir hér, þegar fundir hefjast aftur eftir nýárið.