18.04.1964
Sameinað þing: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í D-deild Alþingistíðinda. (3442)

214. mál, síldarleit

Sjútvmrh. (Emil Jónason):

Herra forseti. Það var nú aðallega út af aths. hv. 1. þm. Austf., sem ég vildi segja nokkur orð til viðbótar.

Það er alveg rétt hjá honum, að það er ástæða til þess að reyna að fylgja síldinni eftir á sumrin og raunar á veturna líka, þegar hún er á göngu, og sjá, hvert hún stefnir og hvort það er ekki hægt að halda veiðinni lengur áfram en meðan hún er rétt upp við landsteinana. En ég vil í þessu efni segja það, að yfirleitt held ég, þó að sjálfsagt megi deila um einstök framkvæmdaatriði í þessari síldarleit, hafi verið farið eftir þeim till., sem fiskifræðingarnir hafa lagt til í þessu efni, eins náið og hægt hefur verið að gera. En jafnvel það getur orkað tvímælis, eins og bezt kom fram fyrir Norðurlandi í sumar, eins og hv. 5. landsk. þm. nefndi hér áðan. Þá var gerð samþykkt um það á Siglufirði,. að leitin yrði stunduð meira á vestursvæðinu en gert var, en það varð til þess, að áskoranir komu frá nærri öllum skipstjórum á síldveiðiskipunum um það, að leitinni yrði haldið áfram í svipuðu horfi og gert var, og þar sem leitarstjóranum, Jakobi Jakobssyni fiskifræðingi, var vottað fullt traust fyrir hans framkvæmd á síldarleitinni. Þetta getur í einstaka tilfelli orkað tvímælis, en yfirleitt er framkvæmd leitarinnar í höndum fiskifræðinganna, og verður sjálfsagt bezt að framkvæma hana á þann hátt yfirleitt; sem þeir leggja til, og ég ætla, að það hafi líka yfirleitt verið gert. Þó að einhverjum finnist, að betur mætti gera, þá getur það náttúrlega alltaf orkað tvímælis og ekki eftir öðru að fara í þessu efni en því, sem fiskifræðingarnir leggja til.