29.04.1964
Sameinað þing: 70. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í D-deild Alþingistíðinda. (3447)
911. mál, lánveitingar úr byggingarsjóði ríkisins
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það er í fyrsta lagi spurt, hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að afla byggingarsjóði ríkisins fjár til íbúðarlána á þessu ári. Þessu get ég svarað þannig, að flutt hefur verið frv, um hækkun á skyldusparnaði ungs fólks úr 6% í 15%. Þessi hækkun á, á ársgrundvelli, að geta gefið um 30 millj. kr. í öðru lagi hefur verið lagt fram frv. til laga um ávöxtun á fé byggingarfélaga, þar sem gert er ráð fyrir skyldu líftryggingarfélaga til þess að kaupa íbúðalánabréf húsnæðismálastofnunar ríkisins fyrir 25% af ráðstöfunarfé sinu. Enn fremur, að ráðherra verði heimilað að skylda önnur tryggingarfélög til þess að kaupa slik bréf fyrir allt að 25% af sínu ráðstöfunarfé. í þriðja lagi mun atvinnuleysistryggingasjóður samkv. ósk ríkisstj. kaupa íbúðalánabréf af húsnæðismálastofnun ríkisins fyrir 37 millj. kr. á þessu ári. Auk þessa hafa svo staðið yfir samningar við lífeyrissjóðina um kaup þeirra á íbúðalánabréfum á þessu ári. Að svo stöddu liggur ekki fyrir, hvern árangur þessar samningaumleitanir bera, en stjórnir þessara lífeyrissjóða, sem talað hefur verið við, segja, að þar sé lítið fé annað að hafa en það, sem þeir nota til að lána meðlimum lífeyrissjóðanna sjálfum. í fimmta lagi má svo geta þess, að frekari fjáraflanir eru í athugun hjá ríkisstj., sem enn liggur ekki fyrir árangur af, en verður gengið eftir á næstunni.
Ég get aðeins bætt því við út af þessum lið, að til viðbótar þessu kemur svo eigið ráðstöfunarfé húsnæðismálastjórnar sjálfrar.
2. liður fsp. hljóðar þannig: „Hve hárri upphæð má búast við, að byggingarsjóðurinn geti úthlutað í ár, og hvenær á árinu?“
Samkv. því svari, sem ég hef nú gefið við fyrri lið fsp., þá liggur ekki enn fyrir, hve hárri fjárhæð verður hægt að úthluta úr byggingarsjóði til íbúðalána á þessu ári enn þá. Næsta úthlutun á vegum húsnæðismálastjórnar fer væntanlega fram innan skamms, þegar fyrir liggur, hve mikið fé verður til ráðstöfunar á árinu og hvenær það verður til ráðstöfunar.