08.05.1964
Neðri deild: 94. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (707)
33. mál, skipulagslög
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. til l. um skipulag var, eins og hv. þdm. er kunnugt, flutt í þessari hv. d. Það gekk síðan til hv. Ed. og hefur nú verið afgreitt þaðan, en með nokkrum breyt., þannig að frv. verður að koma hingað á ný.
Þessar breyt. á 1., sem gerðar voru í hv. Ed., eru flestar tiltölulega ekki stórvægilegar og er að finna á þskj. 562 eins og þær voru samþ.
1. brtt. er um það, að ef ágreiningur verður milli aðila, sem fara með stjórn skipulagsmála, skuli ráðh. skera úr, nema öðruvísi sé sérstaklega ákveðið í lögum.
2. brtt. er á þá leið, að skipulagsstjóri skuli sjá um mælingar, gerð skipulagsuppdrátta og endurskoðun þeirra í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórnir.
3. brtt., sem er umorðun á 4. gr., er í aðalatriðum óbreytt eins og hún var, en þar er þó heimild til þess, að ráðh. geti látið gera drög að héraðs- og landhlutaskipulagi, og nokkrar smávægilegar brtt. aðrar.
Ég tel ekki, að þessar brtt., sem samþ. hafa verið í Ed., skeri úr um neitt aðalatriði í þessum lögum, og vildi þess vegna leyfa mér að vænta þess, að hv. d. samþykki frv. eins og það er nú komið frá hv. Ed.