06.05.1965
Efri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1568 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)
191. mál, lausaskuldir iðnaðarins
Frsm. (Helgi Bergs):
Herra forseti. Á síðasta Alþ. voru samþ. lög um breyt. á lausaskuldum iðnaðarins í föst lán. Í þeim l. er ákveðið, að iðnlánasjóði sé heimilt að gefa út sérstakan flokk vaxtabréfa í þeim tilgangi að breyta í föst lán, lausaskuldum iðnfyrirtækja þeirra, sem skylt er að greiða iðnlánasjóðsgjald samkv. ákvæðum laga þar um og hafa ekki fengið nægileg lán til hæfilegs tíma til þeirra framkvæmda, sem þeir hafa ráðizt í á tímabilinu 1957–1962, að báðum árunum meðtöldum. Þessum lögum var ætlað hliðstætt hlutverk og l. um breyt. á lausaskuldum landbúnaðarins í föst lán og ákvæðum um hliðstæð efni í stofnlánadeildarlögunum að því er laut að sjávarútveginum.
Eins og fram kom hjá hæstv. iðnmrh. við 1. umr. þessa máls, hefur síðan verið unnið að samningu reglugerðar og samningagerð við banka og peningastofnanir um þessi efni og hæstv. ráðh. upplýsti það, að reglugerð væri væntanleg nú á næstu dögum. En við undirbúning þeirrar reglugerðar hefur komið í ljós, að þau tímatakmörk, sem sett eru í l. um, hvenær eigi að hafa verið stofnað til þessara skulda, til þess að þeim yrði breytt á þennan hátt, væru óraunhæf og óeðlileg og hefur því verið flutt stjfrv. það, sem hér liggur fyrir, um að fella niður upphafsár tímabilsins, sem ákveðið er í l. 1957, þannig að einnig skuldir, sem stofnað hefði verið til fyrr, gætu komið til greina í þessu sambandi, og einnig að framlengja hitt takmarkið, árslok 1962, til ársloka 1963.
Iðnn. hefur athugað þetta frv., sem var lagt fram í Nd. og hefur fengið greiðan framgang gegnum þá d. og samþ. þar shlj. og iðnn. hefur orðið sammála um, að þessi breyting sé eðlileg og leggur til, að frv. verði samþ.