11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)

199. mál, lántaka til vegaframkvæmda

Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það er út af ummælum hv. 1, þm. Norðurl. v., sem ég vildi mega leiðrétta hér í sambandi við brtt. þá, sem hann flytur við veg í Árneshreppi, Strandasýslu. Við athuguðum þetta mál við hæstv. samgmrh. Og það, sem ég sagði í n. var; að ráðh. hefði talið, að þetta mundi ekki mögulegt. Hins vegar yrði litið til þessa vegar, eftir því sem ástæða væri til, en alls ekki, að hann væri á móti þessu máli sem slíku.