16.12.1964
Neðri deild: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)
45. mál, ferðamál
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed., þar sem það var flutt af samgmn. d. fyrir beiðni hæstv. samgmrh. Höfuðatriði þess eru þau, að gerð eru skýrari ákvæði laga um ferðamál um greiðslu kostnaðar við starfsemi ferðamálaráðs.
Með 1. gr. frv. er ákveðið svo skýrt, að ekki verður um villzt, að ýmis kostnaður við störf ferðamálaráðs skuli greiðast af hinu fasta ríkisframlagi til ferðamálasjóðs.
Í 2. gr. frv. er það nýmæli tekið upp, að lán úr ferðamálasjóði skuli vera vísitölubundin. Er með þessu ákvæði stefnt að eflingu sjóðsins í framtíðinni.
Loks er gert ráð fyrir því, að taki ferðamálasjóður erlent lán til starfsemi sinnar, þá skuli það endurlánað með gengistryggingu, en ekki vera vísitölubundið.
Samgmn. mælir einróma með samþykkt frv., en 2 hv. nm. hafa undirritað nál. með þeim fyrirvara, að þeir áskilji sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. Hv. 3. þm. Vestf. hefur nú flutt brtt. á þskj. 169 við, 2. gr. frv. Sú till. var einnig flutt í hv. Ed., en var felld þar. Meiri hl. samgmn. þessarar hv. þd. mælir gegn því, að sú brtt. verði samþykkt hér.