15.12.1964
Neðri deild: 27. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í B-deild Alþingistíðinda. (174)
91. mál, ríkisreikningurinn 1963
Frsm. meiri hl. (Matthías A. Mathiesen):
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. deildar hefur haft frv. til i, um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1963 til meðferðar. Frv. hefur verið borið saman við ríkisreikninginn, og hefur nefndin ekkert við það að athuga, að öðru leyti en að í sjálfum reikningnum hefur átt sér stað einhver töluvilla, sem ríkisbókhaldinu hefur verið gerð grein fyrir, en á hinn veginn hefur engin áhrif á ríkisreikninginn, heldur hefur fallið niður í samlestri, og ríkisbókhaldið mun láta í té leiðréttingu á þeim lið til innfestingar í ríkisreikninginn.
Ríkisendurskoðandi, Einar Bjarnason, sem mætti á fundi hjá nefndinni og gaf nefndinni þær upplýsingar, sem hún óskaði eftir, lét nefndinni m.a. í té skýrslu, sem hinir þingkjörnu endurskoðendur höfðu fengið og gátu borið saman við þá skýrslu, sem gefin var á síðasta þingi.
Það kom fram við 1. umr. þessa máls, eins og kemur fram í ríkisreikningnum eða athugasemdum endurskoðenda, að umboðsleg endurskoðun væri nú skemmra á veg komin en áður. Við gerðum fyrirspurn til ríkisendurskoðanda varðandi þessa hluti, og upplýsti hann okkur um það, að að sínu álíti væri verkið í heild lengra á veg komið nú en það hefði verið fyrir
ári. Að hér lægi til grundvallar misskilningur á, að e.t.v. væri stofnanafjöldinn meiri nú en áður, gæti átt sér stað, en verkið í heild væri komið lengra á veg nú en áður.
Nefndarmenn höfðu uppi spurningar við ríkisendurskoðandann, sem hann veitti svör við, og nefndin afgreiddi að því loknu málið þannig, að meiri hl. hennar mælir með samþykkt á frumvarpinu óbreyttu, sbr. þskj. 155, en minni. hlutinn mun skila séráliti eða gera grein fyrir afstöðu sinni.
Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv., og eins og kemur fram í nál. meiri hl., leggjum við til, að frv. verði samþ.