16.12.1964
Neðri deild: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (179)

91. mál, ríkisreikningurinn 1963

Frsm. meiri hl. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. er við umr. í Ed., eins og dm. er kunnugt, en hann hefði viljað við þessa umr. eða við ræðu hv. frsm. minni hl., 1. þm. Norðurl. v., koma fram aths., áður en gengið yrði til atkv. um þær brtt., sem hann leggur til að gerðar verði á ríkisreikningnum. Ég vildi því mega mælast til þess við hv: þm., að hann drægi þessar till. til baka við þessa umr, og hægt væri að afgreiða málið til 3. umr. Þá mundu þessar upplýsingar, sem ráðh. vildi fram koma, vera komnar fram og þm. þar af leiðandi gætu áttað sig á því, sem hann hefur sagt, og þeim upplýsingum, sem fram hafa komið.