03.05.1965
Sameinað þing: 45. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2352 í B-deild Alþingistíðinda. (2127)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (SÁ):
Mér hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Ed.:
„Reykjavík, 1. maí 1965.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, 4. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér að fara fram á fjarvistarleyfi. Vegna forfalla 1. og 2, varamanns Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ., að óska þess, að 3. varamaður flokksins í kjördæminu, Rafn A. Pétursson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþ í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Ó. Ólafsson
forseti Ed.
Til forseta Sþ.“
Þá er hér símskeyti frá Kristjáni Jónssyni, svo hljóðandi:
„Vegna embættisanna get ég ekki tekið sæti á Alþ. núna. — Kristján Jónsson.“
Þetta er símskeyti til Þorvalds Garðars Kristjánssonar.
Þá er hér sömuleiðis bréf til skrifstofu Alþingis frá Einari Guðfinnssyni, svo hljóðandi:
„Ég undirritaður lýsi því hér með yfir, að vegna veikinda get ég ekki tekið sæti á Alþingi.
P.t. Reykjavík, 30/4 1965.
Einar Guðfinnsson.“
Þá er hér kjörbréf fyrir Rafn Alexander Pétursson frá yfirkjörstjórn Vestfjarðakjördæmis. Ég vil leyfa mér að vísa kjörbréfinu til hv. kjörbréfanefndar. Og leyfi ég mér að fresta fundinum, á meðan rannsókn fer fram. [Fundarhlé.]