06.05.1965
Neðri deild: 84. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (2338)

123. mál, nauðungaruppboð

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta er undirbúið með sama hætti og önnur frv. um loftferðamál og miðar að því að veita ákvæðum Genfarsáttmálans frá 1948 um uppboð á loftförum lagagildi. Ákvæðin eru þó eigi takmörkuð við sáttmálaríki, þar sem þau þykja eiga við um önnur loftför.

Samgmn. hefur rætt þetta mál og leggur einróma til, að það verði samþykkt óbreytt að öðru leyti en því, að hún flytur þá brtt. við 5. gr. frv., að lög þessi öðlist þegar gildi.