10.02.1965
Sameinað þing: 26. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í D-deild Alþingistíðinda. (3250)
114. mál, hlustunarskilyrði útvarps á Norður- og Austurlandi
Helgi Bergs:
Herra forseti. Það var aðeins örstutt athugasemd. Þessi fsp., sem hér er verið að ræða, gæti bent til þess, að það vandamál, sem hér er við að etja, næði ekki lengra, en bara til Norður- og Austurlands. En því miður er það orðið þannig í seinni tíð, að það nær alllangt vestur eftir Suðurlandi, þetta ástand, að útvarpsdagskráin er sítrufluð af erlendum stöðvum. Nú liggur það fyrir eftir stuttan tíma, að nýr sendir komi upp hér í Reykjavík. Ég held, að flestir tæknimenn, sem hafa kynnt sér það mál, muni vera sammála um, að það muni ekki ráða bót á þessum vanda og hæstv. menntmrh. hefur nú greint frá ýmsum leiðum, sem væru í athugun hjá útvarpinu í þessu sambandi.
Það er varla vafi á því, að þær ráðstafanir, sem gert er ráð fyrir á langbylgjum, muni hafa mikla úrbót í för með sér. En eins og hv. síðasti ræðumaður, 5. þm. Vesturl., sagði hér áðan, er framtíðin á þessu sviði væntanlega á hinum svokölluðu FM–bylgjum, sem eru hátíðni- eða mjög stuttar bylgjur.
Það, sem gaf mér tilefni til þess að kveðja mér hljóðs er, að ég vildi vekja athygli á nauðsyn þess, að það yrðu skjótlega teknar ákvarðanir í þessum efnum, vegna þess að það streyma inn í landið útvarpstæi, sem ekki hafa það bylgjusvið, sem þarna er um að ræða og formaður útvarpsráðs, hv. 5. þm. Vesturl., taldi vera framtíðina. Það er nauðsynlegt, að fólk fái einhverja hugmynd um, í hve náinni framtíð megi vænta þess, að slíkt verði boðið almennt hér á landi, þannig að það geti miðað þær ráðstafanir, sem það gerir í sambandi við sín tækjakaup, við það, því að ella er um verðmætasóun að ræða, sem sjálfsagt er að reyna að koma í veg fyrir.