08.03.1966
Efri deild: 47. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)

83. mál, sala jarðarinnar Kollaleiru

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Frv. þetta er flutt af því tilefni, að í vetur barst þm. Austurlandskjördæmis erindi frá hreppsnefnd Reyðarfjarðarhrepps í Suður-Múlasýslu, þar sem hreppsnefnd fór þess á leit, að þm. kjördæmisins beittu sér fyrir því, að lagaheimild yrði veitt til þess að selja Reyðarfjarðarhreppi jörðina Kollaleiru. Þm. kjördæmisins ræddu þetta mál og urðu sammála um að verða við þessum tilmælum hreppsnefndar, og er frv. borið fram í Nd. af öllum þm. Austurlandskjördæmis, þeim, er þar eiga sæti.

Frv. þetta hefur nú verið afgr. frá Nd. og hlaut þar meðmæli landbn. allrar. Efni frv. er það, að Reyðarfjarðarhreppur fái heimild til að eignast jörðina Kollaleiru og þá um leið full umráð þess lands, en framtíð staðarins er að mjög verulegu leyti bundin við, að hreppurinn hafi óskoruð umráð yfir þessu landi, því að kauptúnið er að miklu leyti byggt í landi Kollaleiru. En það er, eins og mörg önnur kauptún hér á landi, í örum vexti, og hið mikla atvinnulíf, sem nú er á Austf. og m.a. á Reyðarfirði, kallar á ýmsar framkvæmdir í sveitarfélaginu.

Ég vil vænta þess, að þetta mál, sem í eðli sínu er mjög einfalt, mæti skilningi í þessari hv. d. eigi síður en í Nd. og legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.