31.10.1966
Neðri deild: 9. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (1726)

25. mál, verðjöfnunargjald af veiðarfærum

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. svaraði fsp. minni á þann veg, að það bréf, sem ég las upp, hafi ekki verið tekið til meðferðar í ríkisstj. Ég vil spyrja hann í framhaldi af því, hvort hann teldi það mál, sem bréfið fjallar um, ekki svo stórt og þess eðlis, að það sé eðlilegt, að ríkisstj. taki það til meðferðar.