13.04.1967
Neðri deild: 65. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í D-deild Alþingistíðinda. (2249)
140. mál, rannsóknarnefnd á ásökunum um trúnaðarbrot utanríkismálanefndarmanna
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins í sambandi við þessa seinustu tilvitnun hæstv. utanrrh. í Tímann segja það, að varðandi þessa till., sem Framsfl. lagði til í utanrmn. á sínum tíma, að yrði samþ. hér á Alþ., þá var að vísu þar ekki um að ræða neitt trúnaðarmál, heldur var farið þar að eins og í hverri annarri venjulegri þn. Hins vegar var það mat bæði mitt og annarra á þeim tíma, að meðan væri verið að reyna að ná samkomulagi um þessa till. í n., væri ekki praktískt að ræða um það. En hins vegar var síður en svo, þó að væri sagt frá henni, að viðkomandi aðili gerði sig sekan um trúnaðarbrot. Hins vegar gat verið, að það yrði til þess að koma í veg fyrir, að það næðist samkomulag um þetta atriði. Þó að ég muni nú ekki nákvæmlega eftir þessari grein eða hvort ég hef skrifað hana eða einhver annar, þá held ég, að ég geti fullyrt, að það kemur hvergi fram í henni nein ásökun um það, að viðkomandi aðili, sem hafi sagt frá umræðunum í utanrmn., hafi gert sig sekan um trúnaðarbrot. Hitt er annað mál, hvort það væri praktískt upp á það að ná samkomulagi um þessa till. í n., að sagt væri frá henni.