07.03.1967
Efri deild: 48. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (795)
122. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. minni hl. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Eins og fram hefur komið þá er þetta frv. fylgifrv. og bein afleiðing af því, að hv. d. hefur frv. til l. um afnám heimildar um einkasölu á viðtækjum til umr. Við umr. um það mál í d. gerði fulltrúi Alþb. í viðkomandi n., hv. 5. þm. Reykn., mjög rækilega grein fyrir afstöðu okkar til þess og flutti till. um, að þetta mál allt yrði athugað betur, áður en horfið yrði að því ráði að leggja þessa ríkisstofnun niður. Eins og hv. frsm. meiri hl. sagði, þá er hér um sama málið að ræða. Hér er aðeins um hluta málsins að ræða, beina afleiðingu af því, sem áður hefur verið gert, og ég tel því við hæfi, að sá meiri hl., sem samþ. hið fyrra frv., taki einnig á sínar herðar ábyrgð á þeim ráðstöfunum, sem af því leiða. Hins vegar vil ég segja það, að að hinu frv. samþ., þá tel ég þessar ráðstafanir eftir atvikum ekki óeðlilegar og mun þess vegna ekki beita mér gegn frv., en ég mun ekki heldur ljá því atkv. mitt.