07.11.1967
Efri deild: 13. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2192 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (JR):
Þingdeildinni hefur borizt eftirfarandi bréf frá Ólafi Björnssyni, 12. þm. Reykv.: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Geir Hallgrímsson borgarstjóri hefur áður átt sæti hér á Alþingi á yfirstandandi þingi.