14.02.1968
Sameinað þing: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2694)

69. mál, fiskeldisstöðvar

Jónas G. Rafnar:

Herra forseti Till. til þál. um fiskeldisstöðvar á þskj. 109 var flutt á síðasta þingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Fyrri flm. till., hv. 4. þm. Norðurl. e., fylgdi þá till. úr hlaði með ýtarlegri ræðu. Efni till. er að skora á ríkisstj. að láta hið fyrsta fram fara athugun sérfróðra manna á því, hverjar gerðir fiskeldisstöðva, er reknar yrðu sem aukabúgrein, hentuðu bezt ísl. bændum, og jafnframt láta gera athuganir á kostnaði byggingar og rekstri slíkra eldisstöðva. Þá verður rannsakað, hver opinber stuðningur sé nauðsynlegur til þess, að þessi búgrein geti eflzt með æskilegum hætti

Eins og kunnugt er, er fiskeldi nú orðið allveigamikil atvinnugrein víða um heim. Á Norðurlöndum hefur það reynzt arðvænlegt. T.d. munu Danir á árinu 1965 hafa framleitt um 11 þús. tonn af regnbogasilungi í fiskræktunarstöðvum og flutt verulegan hluta af þeirri framleiðslu út m.a. til Bandaríkjanna. Á síðari árum hefur áhugi manna hér á landi fyrir fiskeldi farið vaxandi, en framkvæmdir allar á þessu sviði eru enn á byrjunarstigi. Áhugasamir einstaklingar hafa unnið brautryðjendastarf og ríkið haft nokkra forgöngu. Fyrir nokkru var hér stofnað félag áhugamanna um fiskrækt, er innt hefur af hendi verulega kynningarstarfsemi Flm. þessarar till. telja, að allar líkur bendi til, að víða um land séu skilyrði til þess, að bændur geti haft hagræði af fiskeldi og drýgt með því tekjur sínar.

Eins og ég gat um, fjallar þessi till. um það, að málið verði athugað af sérfróðum mönnum, og jafnframt kannað, hvaða stuðningur þyrfti til að koma, t.d. aðgangur að stofnlánum, tæknilegar leiðbeiningar og önnur fyrirgreiðsla

Ég leyfi mér svo að vísa til grg., sem till. fylgir, og legg til, að umr. verði frestað og till. vísað til hv. allshn.