17.12.1968
Neðri deild: 32. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)
112. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. sjútvn. með fyrirvara. Fyrirvari minn er einkum bundinn við það, að ég er óánægður með þá lausn, sem hér er stefnt að með þessu frv. Ég hefði kosið að hafa hér annan hátt á, eins og glögglega kom hér fram við 1. umr. málsins, þegar ég ræddi um það í allítarlegu máli. En ég stend að þeim breyt., sem sjútvn. hefur gert við frv., og tel, að þær stefni allar til bóta. Mér er ljóst, að eins og nú er komið þessum málum, verða gerðar bráðabirgðaráðstafanir varðandi þessi mál. og eftir að þær breyt. hafa fengizt á frv., sem nú koma fram í till. sjútvn., mun ég ekki beita mér gegn því, að þetta mál nái hér fram að ganga. Ég tel, að þær breyt., sem sjútvn. féllst á, séu mjög mikilvægar, en þó er mér það ljóst, að þessar bráðabirgðaráðstafanir eru svo ófullkomnar, að það hlýtur að verða undan þeim kvartað af ýmsum, þar sem þessar reglur eiga ekki við nema að litlu leyti. En ég held, að samt sem áður sé það svo, að það sé betra, að málið fái þessa afgreiðslu, sem hér er stefnt að, en það haldi áfram í þeirri flækju, sem það var komið í, þó að ég hefði kosið hina leiðina helzt, að hægt hefði verið að vinna með eðlilegum hætti á þeim grundvelli, sem landhelgismálanefnd hafði sett sér. Ég hef hér sem sé gert grein fyrir mínum fyrirvara í sambandi við þetta nál., og með tilliti til þess mun ég ekki standa gegn því, að þetta geti náð hér fram að ganga á þessu þingi.