18.12.1968
Sameinað þing: 24. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í D-deild Alþingistíðinda. (3203)
34. mál, ferðamál
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það er aðeins leiðrétting. Mér þykir það mjög leitt, að ég hafði misskilið það, að það er Farmanna— og fiskimannasambandið, sem hefur sent inn meðmæli með þáltill. og óskað eftir þátttöku í n., en ekki Samband matreiðslu— og framreiðslumanna. Þetta vil ég, að komi fram strax, að ég hafði misskilið þetta. Það er frá Farmanna— og fiskimannasambandinu. Og það er ekki hægt að segja annað, en því sambandi komi það mjög mikið við, hvernig á þessum málum verður haldið.