06.11.1968
Sameinað þing: 8. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í D-deild Alþingistíðinda. (3599)
259. mál, sjónvarp frá Skáneyjarbungu
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það gildir það sama um þennan dagskrárlið og þann, sem hér var áður til umr. Fyrirspyrjandinn, hv. þm. Jónas Árnason, er ekki viðstaddur til þess að tala fyrir þessari fsp. Vil ég óska eftir því fyrir hans hönd, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að svara fsp., sem er á þskj. 30 og er þannig:
„Hvenær má búast við því, að útsendingar frá endurvarpsstöð sjónvarpsins á Skáneyjarbungu í Borgarfirði komist í viðunandi lag?“
Ég vænti, að hæstv. ráðh. sjái sér fært að svara fsp., þó að frá minni hálfu fylgi engar útskýringar á því máli, sem um er að ræða, en málið er tengt erfiðleikum á hlustunarskilyrðum í dölum Borgarfjarðar.